Kjalnesinga saga 1. kafli Helgi bjóla son Ketils flatnefs nam Kjalarnes millum Leiruvogs og Botnsár og bjó að Hofi á Kjalarnesi. Hann var nytmenni mikið í fornum sið, blótmaður lítill, spakur og hægur við alla. Helgi átti Þórnýju dóttur Ingólfs í Vík er fyrst byggði Ísland. Þeirra synir voru þeir Þorgrímur og Arngrímur. Þeir voru báðir miklir menn og sterkir og hinir vasklegustu menn. Helgi skipaði skipverjum sínum lönd þau sem hann hafði numið. Hann fékk Þrándi á Þrándarstöðum, Eilífi í Eilífsdal, Hækingi í Hækingsdal, Tind á Tindsstöðum og þar hverjum sem honum þótti fallið vera. Maður hét Örlygur. Hann var írskur að allri ætt. Í þann tíma var Írland kristið. Þar réð fyrir Konofogor Írakonungur. Þessi fyrrnefndur maður varð fyrir konungs reiði. Hann fór að finna Patrek biskup frænda sinn en hann bað hann sigla til Íslands "því að þangað er nú," sagði hann, "mikil sigling ríkra manna. En eg vil það leggja til með þér að þú hafir þrjá hluti. Það er vígð mold að þú látir undir hornstafi kirkjunnar og plenarium og járnklukku vígða. Þú munt koma sunnan að Íslandi. Þá skaltu sigla vestur fyrir þar til er fjörður mikill gengur vestan í landið. Þú munt sjá í fjörðinn inn þrjú fjöll há og dali í öllum. Þú skalt stefna inn fyrir hið synnsta fjall. Þar muntu fá góða höfn og þar er spakur formaður er heitir Helgi bjóla. Hann mun við þér taka því að hann er lítill blótmaður og hann mun fá þér bústað sunnan undir því fjalli er fyrr sagði eg þér frá. Þar skaltu láta kirkju gera og gefa hinum heilaga Kolumba. Far nú vel," sagði biskup, "og geym trú þinnar sem best þóttú verðir með heiðnum." Eftir það býr Örlygur ferð sína og er frá ferð hans það fyrst að segja að allt gekk eftir því sem biskup sagði. Hann tók í Þerneyjarsundi höfn. Síðan fór hann að finna Helga bjólu og tók hann vel við honum. Reisti Örlygur þar nú bú og kirkju og bjó þar síðan til elli. 2. kafli Á ofanverðum dögum Konofogors kom skip í Leiruvog. Þar voru á írskir menn. Maður hét Andríður, ungur og ókvongaður, mikill og sterkur. Þar var á kona sú er hét Esja, ekkja og mjög auðig. Sá maður er nefndur Kolli er þar var á skipi með þeim. Helgi tók við þeim öllum. Kolla setti hann niður í Kollafjörð en með því að Örlygur var gamall og barnlaus þá gaf hann upp land og bú og tók Esja við. Settist hún þá að Esjubergi. Allir þessir menn voru kallaðir skírðir en þó var það margra manna mál að Esja væri forn í brögðum. Andríður fór um veturinn til vistar til Hofs. Var þar þá fóstbræðralag og með sonum Helga. Andríður bað Helga fá sér bústað og kvonfang. Hann hafði auð fjár. Þá var skógi vaxið allt Kjalarnes svo að þar aðeins var rjóður er menn ruddu til bæja eða vega. Braut mikil var rudd eftir holtunum frá Hofi. Þangað riðu þeir Helgi og Andríður um vorið. Og er þeir komu út á holtið þá mælti Helgi: "Hér við eg Andríður," sagði hann, "gefa þér jörð og að þú reisir hér bæ. Mér þykir sem þeir synir mínir vilji að þér sitjið nær." Eftir það reisti Andríður bæ í brautinni og kallaði Brautarholt því að skógurinn var svo þykkur að honum þótti allt annað starfameira. Andríður setti þar reisulegt bú saman. Maður hét Þormóður. Hann bjó í Þormóðsdal. Með honum var systir hans er Þuríður hét. Hún var fríð sýnum og auðig að fé. Þessar konu bað Helgi til handa Andríði og þessi konu var honum heitið. Þetta sumar var og heitið Þorgrími Helgasyni Arndísi dóttur Þórðar Skeggjasonar af Skeggjastöðum og voru brullaupin bæði saman að Hofi og var veitt með hinu mesta kappi. Var þar og allfjölmennt. Eftir boðið fór Þuríður í Brautarholt og tók við búi fyrir innan stokk. Var það brátt auðsætt að hún var mikill skörungur. Þau höfðu mart ganganda fjár og gekk allt nær sjálfala úti í skóginum um nesið. Þetta haust var honum vant kvígu þrevetrar myrkrar. Hún hét Mús. Þessi kvíga fannst þrem vetrum síðar á nesi því er liggur til vesturs undan Brautarholti og hafði hún þá með sér tvo dilka, annan veturgamlan en annan sumargamlan. Því kölluðu þeir það Músarnes. Þann vetur er Andríður bjó fyrstan í Brautarholti andaðist Helgi bjóla. Það þótti mönnum hinn mesti skaði því að hann var hinn vinsælasti maður. Um vorið skiptu þeir bræður föðurarfi sínum. Hafði Þorgrímur föðurleifð þeirra og mannaforráð því að hann var eldri, en Arngrímur útjarðir. Hann reisti bæ við fjörðinn er hann kallaði Saurbæ. Hann fékk borgfirskrar konu er Ólöf hét. Þau gátu tvo sonu saman er hétu Helgi og Vakur. Þeir urðu fræknir menn en ekki miklir á vöxt. Þorgrímur reisti bú um vorið að Hofi. Var það brátt stórkostlegt enda stóðu margar stoðir undir, vinir og frændur. Gerðist hann héraðsríkur. Hafði hann mannaforráð allt til Nýjahrauns og kallað er Brundælagoðorð. Hann var kallaður Þorgrímur goði. Hann var blótmaður mikill. Lét hann reisa hof mikið í túni sínu. Það var hundrað fóta langt en sextugt á breidd. Þar skyldu allir menn hoftoll til leggja. Þór var þar mest tignaður. Þar var gert af innar kringlótt svo sem húfa væri. Það var allt tjaldað og gluggað. Þar stóð Þór í miðju og önnur goð á tvær hendur. Frammi fyrir þar stóð stallur með miklum hagleik ger og þiljaður ofan með járni. Þar á skyldi vera eldur sá er aldrei skyldi slokkna. Það kölluðu þeir vígðan eld. Á þeim stalli skyldi liggja hringur mikill af silfri ger. Hann skyldi hofgoði hafa á hendi til allra mannfunda. Þar að skyldu allir menn eiða sverja um kennslumál öll. Á þeim stalli skyldi og standa bolli af kopar mikill. Þar skyldi í láta blóð það allt er af því fé yrði er Þór var gefið eða mönnum. Þetta kölluðu þeir hlaut eða hlautbolla. Hlautinu skyldi dreifa yfir menn eða fé en fé það sem þar var gefið til skyldi hafa til mannfagnaðar þá er blótveislur eru hafðar. En mönnum er þeir blótuðu skyldi steypa ofan í fen það er úti var hjá dyrunum. Það kölluðu þeir Blótkeldu. Þau þvertré voru í skálanum að Hofi er verið höfðu í hofinu þá er Ólafur Jónsson lét bregða. Lét hann þá öll kljúfa í sundur og voru þá enn alldigur. Þorgrímur lét setja vorþing á Kjalarnesi suður við sjóinn. Enn sér stað búðanna. Þar skyldi smámál sækja og þau ein til alþingis leggja er þar yrðu eigi sótt eða stærst væru. Þau Þorgrímur og Arndís gátu son saman. Sá hét Þorsteinn. Hann var snemmendis uppivöðslumaður mikill og þótti allt lágt hjá sér. Kolli bjó í Kollafirði sem fyrr var sagt. Hann fékk þeirrar konu er Þorgerður hét, dóttur Eilífs úr Eilífsdal. Þau gátu dóttur saman er Ólöf hét. Það var að ágætum gert hversu fögur hún var og því var hún kölluð Ólöf hin væna. 3. kafli Þá er þau Andríður höfðu búið nokkura vetur í Brautarholti gátu þau son saman. Sá var vatni ausinn og kallaður Búi. Hann var brátt mikið afbragð annarra manna ungra, meiri og sterkari en aðrir menn og fríðari að sjá. Esja bjó að Esjubergi sem fyrr var sagt. Hún bauð til fósturs Búa syni Andríðs og fæddist hann upp að Esjubergi. Búi var kallaður einrænn í uppfæðslu. Hann vildi aldrei blóta og kveðst það þykja lítilmannlegt að hokra þar að. Hann vildi og aldrei með vopn fara heldur fór hann með slöngu eina og knýtti henni um sig jafnan. Kona er nefnd Þorgerður. Hún bjó á þeim bæ er heitir að Vatni er síðar er kallað Elliðavatn. Með henni fæddist upp son hennar er Kolfinnur hét. Hann var snemma mikill og ósýnilegur, svartur á hár. Hann lagðist á eldgróf og beit börk af viði steiktan og gætti katla móður sinna. Þorgerði þótti á þessu mein mikið. Þó vildi Kolfinnur ráða. Þorgrímur goði gaf mikinn gaum að þeim mönnum sem ekki vildu blóta. Sættu þeir af honum hinum mestum afarkostum. Létu þeir Þorsteinn son hans þá fara mikil orð til Búa er hann vildi eigi blóta og kölluðu hann Búa hund. Það vor er Búi var tólf vetra en Þorsteinn son Þorgríms var átján vetra stefndi Þorsteinn Búa um rangan átrúnað til Kjalarnessþings og lét varða skóggang. Þessa sök sótti Þorsteinn og varð Búi sekur skógarmaður. Eigi lét Búi sem hann vissi og öllum ferðum sínum háttaði hann sem áður. Hann fór jafnan í Brautarholt að finna föður sinn og móður og svo gerði hann enn. Af þessu öllu saman urðu fáleikar miklir millum húsa. Um vorið er á leið er þess getið að Búi fór til Brautarholts. Hann fór jafnan einn saman. Ekki hafði hann vopnaburð meira en fyrr. Hann hafði knýtt um sig slöngu sinni. Þorsteinn sá för Búa og kenndi manninn. Hann gekk þá til föður síns og mælti: "Hversu lengi skal svo fram fara faðir að sjá hundur er eg sótti til skógar í sumar skal hér ganga um tún svo frjálslega sem hann eigi oss öngu að svara? Sýnist mér ef slíkt þolist af þínum nábúum sem öðrum muni eigi mikið þykja fyrir að brjóta þitt boð eða hirða eigi hvað vér mælum." Þorgrími kveðst mikið þykja til slíks haft "eða hvað viltu nú að hafast?" Þorsteinn segir: "Ljós er eg í því. Eg vil að þú fáir mér menn. Vil eg taka Búa af lífi er hann fer heim. Mér þykir eigi það í að virða að faðir hans bjóði nokkura sæmd fyrir hann." Þetta staðfestist með þeim feðgum. Halda þeir nú til njósnum nær Búi gengur heim hjá. Búi dvaldist nokkurar nætur í Brautarholti og er hann bjóst heim kom Þuríður móðir hans að honum og mælti: "Það vildi eg son minn að þú færir eigi svo óvarlega. Mér er sagt að Þorsteinn hafi hörð orð til þín. Vildi eg að þú létir fara með þér hið fæsta tvo vaska menn og bærir vopn en færir eigi slyppur sem konur." Búi segir: "Skyldur er eg að gera eftir þínum vilja en þungt er fóstru minni að annast slíka fleiri sem eg er. En vant er að sjá þótt fund okkarn Þorsteins beri saman hverjir frá kunna að segja þótt eg eigi við liðsmun nokkurn. Mun eg fara að sinni sem eg hefi ætlað." Eftir það fer Búi leið sína austur með sjá og þegar fékk Þorsteinn njósn af. Þeir tóku þá vopn sín og urðu saman tólf. Búi var þá kominn á hæð þá er heitir Kléberg er hann sá eftirförina. Nam hann þá staðar og tók að sér steina nokkura. Þeir Þorsteinn fóru mikið og er þeir komu yfir læk þann er þar var þá heyra þeir að þaut í slöngu Búa og fló steinn. Sá kom fyrir brjóstið á einum manni Þorsteins og fékk sá þegar bana. Þá sendi Búi steina nokkura og hafði mann fyrir hverjum. Voru þeir Þorsteinn þá mjög komnir að Búa. Sneri Búi þá af hæðinni annan veg. Var þá leitið eitt í millum þeirra. Í því laust yfir myrkri því að hvergi sá af tám sér. Þorsteinn mælti þá: "Nú er við ramman reip að draga er bæði er að eiga við hund og tröll en aftur munum vér nú fara fyrst að sinni. En vilja skal eg til hafa að sá verði fundur okkar Búa að við eigum ekki báðir frá að segja." Eftir það sneru þeir aftur og báru förunauta sína með sér og undu allilla við sína ferð. Var það og mál manna að þeim hefði allilla til tekist ferðin. 4. kafli Búi fór heim og var Esja fóstra hans úti í dyrum og heilsaði vel Búa. Hann tók og vel kveðju hennar. Esja mælti: "Þóttist þú nú ekki liðfár vera um hríð?" Búi mælti: "Eigi þurfti nú fleiri." Esja mælti: "Eigi varstu nú einn í bragði með öllu." Búi mælti: "Gott þykir mér góðs að njóta." Esja mælti: "Mun þér ekki enn leiðast eltingar Þorsteins?" "Þá vissi það," sagði Búi, "ef eg ætti nokkurs trausts von." Esja mælti: "Til margs verður hætt jafnan." Eftir það skildu þau talið. Nú líður á til vetrar. Þá fer Búi einn aftan seint út í Brautarholt og var þar um nóttina. Um morguninn fyrir dag var hann á fótum. Sneri hann þá austur á holtið þar er hann sá gjörla til bæjarins að Hofi. Veður var heiðríkt og bjart. Hann sá að maður kom út snemma að Hofi í línklæðum. Sá sneri ofan af hliðinu og gekk stræti það er lá til hofsins. Kenna þóttist Búi að þar var Þorsteinn. Búi sneri þá til hofsins og er hann kom þar sá hann að garðurinn var ólæstur og svo hofið. Búi gekk þá inn í hofið. Hann sá að Þorsteinn lá á grúfu fyrir Þór. Búi fór þá hljóðlega þar til er hann kom að Þorsteini. Hann greip þá til Þorsteins með því móti að hann tók annarri hendi undir knésbætur honum en annarri undir herðar honum. Með þeim hætti brá hann Þorsteini á loft og keyrði höfuð hans niður við stein svo fast að heilinn hraut um gólfið. Var hann þegar dauður. Búi bar hann þá út úr hofinu og kastaði honum undir garðinn. Síðan sneri hann inn aftur í hofið. Hann tók þá eldinn þann hinn vígða og tendraði. Síðan bar hann login um hofið og brá í tjöldin. Las þar brátt hvað af öðru. Logaði nú hofið innan á lítilli stundu. Búi sneri þá út og læsti bæði hofinu og garðinum og fleygði lyklunum í logann. Eftir það gekk Búi leið sína. Þorgrímur goði vaknaði um morguninn og sá út. Hann gat að líta logann til hofsins. Hét hann á menn sína, bæði konur og karla, að hlaupa til með vatnkeröld og hjálpa við hofinu. Hann kallar og á Þorstein son sinn og fannst hann hvergi. En er þeir komu til garðshliðsins var þar ekki greiðfært því að hliðið var læst en þeir fundu hvergi lyklana. Urðu þeir að brjóta upp hliðið því að garðurinn var svo hár að hvergi mátti að komast. Brutu þeir þá upp hliðið. Og er þeir komu inn um hliðið og í garðinn sáu þeir hvar Þorsteinn lá dauður. Hofið var og læst og mátti því öngu bjarga er inni var. Voru þá gervir til krakar og varð dregið í sundur hofið og náðist við það nokkuð af viðinum. Nú er að segja frá Búa að hann kom á þann bæ er heitir í Hólum. Lýsti hann þar vígi Þorsteins sér á hönd, gekk eftir það heim. Var Esja fyrir vestan garð og heilsaði Búa. Hann tók vel kveðju hennar. Hún mælti: "Hefir þú nokkuð eltur verið í morgun af Þorsteini eða hefir nokkuð nú tekið brýningunni?" Búi kveðst nú ekki þræta að þeim Hofverjum þætti í orðið nokkuð svarf. Esja mælti: "Hefir þú nokkuð lýst víginu?" Hann kveðst það gert hafa. Esja mælti: "Ekki hefi eg til þess traust að halda þig fylgsnislaust fyrir Þorgrími því að eg veit að hann kemur hér í dag. Búi mælti: "Muntu nú eigi sjá fyrir sem þér líkar?" Sneru þau þá fyrir ofan garð með fjallinu og þar yfir ána og síðan gengu þau einstigi upp í fjallið og til gnípu þeirrar er heitir Laugargnípa. Þar varð fyrir þeim hellir fagur. Var það gott herbergi. Þar var undir niðri fögur jarðlaug. Í hellinum voru vistir og drykkur og klæði. Þá mælti Esja: "Hér muntu nú fyrst verða að byggja." Búi kvað svo vera skulu. Esja sneri þá heim og þegar hún kom heim lét hún gera elda í húsunum af vatntorfi því er sviðnaði en yrði sem mestur reykur eða remma. 5. kafli Bóndi sá er bjó í Hólum reið þegar á fund Þorgríms goða er Búi var í brott og sagði honum hvert erindi Búi hafði þangað haft. Og þegar Þorgrímur var þessa vís þá sendi hann fyrst eftir mönnum, sonum Arngríms bróður síns, Helga og Vakur, og öðrum fleirum svo að þeir urðu saman þrír tigir manna. Þorgrímur reið með flokk þenna til Esjubergs. Og er sén var ferð þeirra þá lét Esja bera sorp á eldana og horn en hún stóð úti í dyrum er þeir Þorgrímur komu. Esja heilsaði þeim og bauð þeim þar að vera. Þorgrímur sagði annað erindi sitt en eta þar mat: "Viljum vér," sagði hann, "að þú seljir fram Búa hund fóstra þinn og skulum vér fá honum herfilegan dauða sem maklegt er." Esja mælti: "Hvað hefir fóstri minn þess til gert að hann sé dauða verður?" Þorgrímur segir: "Það mun þér eigi allókunnigt. Kanntu að láta marga vega. Hann hefir unnið þau ódæmaverk að því er betur að eigi munu dæmi til finnast. Hann hefir drepið Þorstein son minn en það þó með að þetta er lítils vert. Hann hefir brennt upp hofið og goð vor." Esja mælti: "Þótt Búi fóstri minn væri hér og hefði hann dauðaverk gert þá mundi eg þér hann aldrei til dauða fram selja. En nú hefir Búi ekki hér komið síðan gærdag er hann gekk braut." Þorgrímur mælti: "Vér trúum því eigi að hann sé eigi hér og viljum vér rannsaka." Esja mælti: "Finn eg nú það að Helgi bjóla faðir þinn er dauður. Aldrei mundu hús mín rannsökuð ef hann mætti um mæla. En vera mun sá ríkismunur nú að þú munt ráða ætla. En ekki skulu að vilja mínum fleiri menn fara um hús mín en þú við hinn fimmta mann." Þorgrímur kvað svo vera skyldu. Þorgrímur gekk þá inn og þeir fimm. Esja stóð í dyrum og kvaddi til griðkonu að bera ljós fyrir þeim. En er þeir Þorgrímur komu inn þá voru húsin full af reyk og af svo mikilli remmu að varla máttu þeir draga öndina nema þeir byrgðu fötum yfir höfuð sér. En heimakonu tókst seint að kveikja ljósið en þó varð það um síðir að það var borið fyrir þeim að kalla. En þeir voru þó miklu skemur inni og fóru óvíðara og forvitnuðust færra en þeir mundu ef nokkurum væri inni vært. Eftir það komu þeir út og kváðu þar öngum manni inn kvæmt. Þorgrímur mælti: "Það höfum vér fyrir satt Esja að þú hafir Búa undan brugðið. Mundum vér nú gangast nær ef eigi nytir þú föður míns og þess að mér þykir til einskis að taka þig höndum." Esja mælti: "Eigi mun Búi hér finnast því að hann hefir hér ekki í dag komið." Eftir það reið Þorgrímur í brott og heimleiðis. Hann mælti þá til sinna manna: "Miklu liggur mér þetta allt saman í meira rúmi en eigi verði nokkur niður að koma mín reiði. Skal fara í Brautarholt að drepa Andríð." Helgi og Vakur sögðu það illt verk að drepa hann gamlan. Þorgrímur kveðst það nú gera skyldu. Ríða þeir þá í Brautarholt. Var þar engi vörn fyrir því að Andríður var tekinn í öndugi sínu og leiddur út. Þuríður húsfreyja bauð fé fyrir Andríð bónda sinn en það tjáði ekki. Fékk Þorgrímur til mann að drepa hann og varð hann drengilega við dauða sinn. Eftir það ríða þeir á braut. Þuríður húsfreyja lét búa um lík Andríðs og var hann fluttur í ey þá er þar liggur fyrir landi og var þar heygður og er sú ey kölluð síðan Andríðsey. 6. kafli Þetta sama haust sem nú var frá sagt kom skip af hafi. Stýrimaður hét Örn, víkverskur að ætt. Örn stýrimaður fór til vistar í Kollafjörð. En er Austmaður hafði þar eigi lengi verið leiddi hann augum til hversu fögur Ólöf var Kolladóttir. Tók hann þá í vana að sitja á tali við hana hvern dag. Kolli hafði prúð híbýli. Vildi hann þá og halda til gleði sakir stýrimanns. Lét hann þá efla til leika. En er það spurðu ungir menn um sveitina þá drifu þeir til og urðu þar leikar fjölmennir. Esja kom brátt að finna Búa fóstra sinn og sagði dráp föður hans. Ekki brá Búi sér við það, kvað falls von að fornu tré. Þess er nú getið að einn dag kom Esja að finna Búa. Hann spurði þá hvað hún hefði honum að segja í nýjungu. Hún kvað leika lagða í Kollafirði "en hitt er meira," sagði hún, "að Örn stýrimaður situr á tali við Ólöfu hina vænu hvern dag og ætla menn að hann muni glepja hana." Búi mælti: "Hún skyldi fá gott forlag." Ejsa mælti: "Allvesalmannlega koma þér stundum orð upp þar sem eg hefi þér þessa konu ætlað. Nú vil eg að þú gangir til leika þangað og hættir svo lífi þínu. Ekki má varðveita þig þannig ef þér er dauði ætlaður." Búi kvað hana ráða skyldu. Eftir um morguninn gekk Búi til leiks í Kollafjörð. Hann kom heldur síð og var tekið til leiksins. Hinn sama hafði hann búning, gyrt að sér slöngu sinni. Ólöf sat á palli og Örn stýrimaður á aðra hönd henni og töluðust þau við. Búi gekk að palli og kippti upp þeim tveim er sátu á aðra hönd Ólöfu. Síðan settist hann niður og sat þar þann dag, gekk heim um kveldið í helli sinn. Svo breytti hann annan dag og hinn þriðja. Örn austmaður hélt hætti sínum en hvorgi talaði svo við Ólöfu að eigi heyrði annar. 7. kafli Nú er þar til að taka er Þorgerður húsfreyja var að Vatni. Hún kom í eldhús um dag. Þar lá Kolfinnur son hennar og rétti býfur helsti langar. Hún mælti: "Mikið má skilja," sagði hún, "til hvers menn eru fæddir í heiminn og að hverju getið skal verða. Þeir sitja tveir menn í Kollafirði og keppast um Ólöfu hina vænu og mörg karlmannleg brögð eru frá þeim sögð. Nú ganga þangað allir ungir menn til leika en þú ert sú vanmenna að þú liggur í eldgrófum til hrellingar þinni móður og væri betra að þú værir dauður en vita slíka skömm í ætt sinni." Kolfinnur segir: "Áköf ertu nú móðir og mun brátt betur." Þorgerður snýr á burt. Litlu síðar rís Kolfinnur upp og gengur út og litast um, sér að ekki er framorðið. Kolfinnur var svo búinn að hann var í kollhettu og hafði kneppt blöðum milli fóta sér. Hann hafði hökulbrækur og kálfskinnskó loðna á fótum. Viðarbolungur stóð á hlaðinu. Gekk hann þangað til og tók eitt tré hátt í hönd sér, sneri síðan úr garði. Hann skaut stönginni fram fyrir sig og hljóp þar eftir síðan. Hann fór stórlega mikið. Eigi létti hann fyrr en hann kom í Kollafjörð. Var þá tekið til leiks. Ólöf sat á palli og á sína hönd henni hvor, Örn austmaður og Búi. En er Kolfinnur kom í stofu svo búinn sem fyrr var sagt þótti flestum mönnum hann vera heldur hæðilegur. Hann nam staðar á gólfinu og litast um. Hann sá hvar reiðustóll stóð á gólfinu. Hann gekk þangað og tók stólinn og setti að framan þar sem Ólöf sat. Kolfinnur settist síðan á stólinn og sat þar þann dag allan. Um kveldið gekk hann heim. Hann gekk á til stofu. Móðir hans heilsaði honum og spurði hvar hann hefði verið. Hann sagði henni. Hún mælti: "Hversu þótti þér þar að litast um?" "Gott," sagði hann. Skaltu fara þangað oftar?" sagði hún. Kolfinnur segir: "Ekki þykist eg lausgeðjaður," sagði hann, "í athöfnum mínum. Þykir mér nú von að eg veiti þér þetta að ganga þangað um hríð." Hún mælti: "Það vil eg þó að þú hafir klæði sæmileg son minn og vopn góð og mann til fylgdar," sagði hún. "Það vil eg eigi," sagði hann, "vil eg halda búnaði mínum svo búið. Mun eg og öngan mann með mér draga." "Þú munt ráða vilja," sagði hún. Eftir um morguninn gekk Kolfinnur til Kollafjarðar og háttaði öllu sem hinn fyrra dag. Svo fór fram öndverðan vetur að þessir þrír menn háttuðu svo ferðum sínum. Engi þeirra mælti við annan, hvorki gott né illt. Engi mælti og það við Ólöfu að eigi heyrði annar. Öllum svaraði hún þeim kurteislega. Þorgrímur goði spyr nú athæfi Búa og atferði en sakir þess að hann hafði nær höggið honum í drápi föður hans þá gerði hann nú eigi til hans og hefir þetta nú svo liðið nokkura stund. 8. kafli Þess er nú getið einn tíma að Örn austmaður kemur að máli við Kolla bónda. Hann mælti svo: "Hér horfði til þess Kolli," sagði hann, "að hér mundu verða góð híbýli og það eina leiðir af þér til er vel er. En það má þykja mikil ófyrirsynja er þessir tveir menn hafa vanið hingað komur sínar og þykir mér það þolanda ef illa skal vera að Búi hafi slíka meðferð en hitt óhræsi er þar situr og hlýðir til tals manna þá er eg é enda kljáður að þola það lengur." Kolli segir: "Hér vil eg að þú hafir þá meðferð er þér líkar." Þenna sama aftan bað Örn svein sinn taka vopn þeirra og ganga með suður úr túni og bíða sín þar. En með því að þys var mikill en margir menn bjuggust þá gáfu öngvir menn gaum að Austmanni hvert hann gekk. Sneri Austmaður þá suður um holt það er þar var. Sátu þeir þar tveir fyrir Kolfinni. Eftir leikinn gekk Kolfinnur út að vanda og fór leið sína. En er hann kom suður af holtunum hlupu þeir Örn austmaður upp og sóttu að honum. Kolfinnur varðist með lurkinum og barði vopnin fyrir þeir. Varð þeim hann torsóttari en þeir hugðu. Og er þeir höfðu saman átt um hríð sló Kolfinnur sveininn í rot. Hraut þá frá honum bæði skjöldurinn og sverðið. Kolfinnur greip þá upp hvorttveggja. Sótti hann þá að Erni austmanni og lauk svo að Örn féll en Kolfinnur varð sár. Í því raknaði sveinninn við og vildi Kolfinnur ekki gera honum meira. Gekk hann þá leið sína. Sveinninn sá Austmanninn veginn. Skaut hann þá yfir hann skildi, gekk síðan heim í Kollafjörð. Kolli lét flytja heim lík hans og búa um eftir siðvenju. Nú er að segja frá ferð Kolfinns. Hann var sár mjög sem sagt var. Ár stórar voru á leið hans. En er hann kom af Leiruvogsá þá gerði honum kalt mjög og stirðnaði hann. Frost var á nokkuð. Maður hét Korpúlfur. Hann bjó á Korpúlfsstöðum. Hann var gamall maður og kallaður heldur forn í brögðum. Son átti hann þann er Grímur hét. Hann var ungur og frálegt mannsefni. Korpúlfur var móðurbróðir Kolfinns. Þangað sneri Kolfinnur sinni ferð og fékk þar góðar viðtökur. Batt Korpúlfur sár hans. Dvaldist Kolfinnur þar um hríð en sendi móður sinni orð hvað hann dvaldi. Þenna sama morgun sem Örn var veginn kom Esja snemma til fóstra síns. Hann fagnaði henni vel og spurði að tíðindum. Esja sagði honum víg Arnar austmanns og alla atburði þá er þar urðu: "Nú vil eg að þú breytir búnaði þínum. Hefi eg hér nú loðkápu er eg vil að þú berir. Skyrta er hér annað klæði. Það þykir mér líkara að hún slitni ekki skjótt hvorki fyrir vopnum né fyrnsku. Sax er hér hinn þriðji gripur. Þess væntir mig að það nemi hvergi í höggi stað því að þú munt nú skjótt verða að reyna hversu þér bíta vopnin." Búi kvað hana ráða skyldu. Búi hélt ferðum sínum í Kollafjörð. Var nú engi þröng á palli hjá Ólöfu. Jafnt lét hún til Búa nú sem fyrr. Þá er Kolfinnur var gróinn sára sinna sagði hann Korpúlfi frænda sínum að hann vill finna móður sína. Korpúlfur bað hann því ráða "en því vil eg ráða að þú hafir eigi lengur tötra þessa." sagði Korpúlfur, "vil eg að þú hafir héðan góð klæði og vopn er eg vil gefa þér. Muntu þeirra brátt þurfa. Þar með vil eg gefa þér Grím son minn til fylgdar og föruneytis." Kolfinnur kvað svo vera skyldu. Eftir það fóru þeir frændur til Vatns að finna Þorgerði. Varð hún þeim fegin og spurði hvað Kolfinnur vildi að hafast. Kolfinnur mælti: "Eg ætla nú á fund Búa. Skulum við eigi lengur sitja báðir á tali við Ólöfu." Þorgerður mælti: "Sú fyrirætlan er ei vænleg, að skipta höggum við Búa við margkunnindi Esju en harðfengi hans." Kolfinnur segir: "Tveir eru í hættu hverri. Annaðhvort mun eg lifa eða deyja." "Þú munt ráða vilja son minn," segir hún. 9. kafli Um morguninn fóru þeir frændur snemma og komu í Kollafjörð. Bjuggust menn þá til leiks. Búi sat á palli hjá Ólöfu. Kolfinnur sneri til stofu og gekk að pallinum þar sem Búi sat og mælti: "Tveir eru þér kostir gerðir," sagði Kolfinnur, "sá annar að þú léttir komum hingað með öllu, hinn annar að þú gakk á hólm við mig á morgun í hólmi þeim er liggur suður í Leiruvogsá." Búi segir: "Því heldur skal kjósa sem kostir eru ójafnari. Eg hefi verið sjálfráði ferða minna hér til og svo ætla eg enn en hólmgöngu skal veita þér þegar þú vilt." Eftir það tóku þeir höndum saman og bundu þetta sín á milli. Þeir Kolfinnur og Grímur höfðu sig þegar á braut. Fóru þeir um kveldið á Korpúlfsstaði og sögðu Korpúlfi hvar komið var. Hann segir: "Nú stefnir þú frændi ekki vænt. Hefir þeim orðið þungt að skipta við Esju er meira áttu undir sér. En það mun nú fram verða að ganga sem ætlað er." Þar voru þeir um nóttina. En er þeir bjuggust mælti Korpúlfur: "Lítið lið má eg veita þér Kolfinnur," sagði hann, "en sverð er hér er eg vil gefa þér. Þetta bar eg öndverða daga mína. En ekki mun þér það fyrir mikið koma í þetta sinn." Eftir það fóru þeir frændur leið sína. Búi var eftir hjá leik er þeir Kolfinnur skildu. Gekk hann ekki heim fyrr en að vanda. Var Esja þar fyrir og heilsaði fóstra sínum og spurði hvort honum væri á hólm skorað. Hann kvað svo vera. Esja mælti: "Þar er harðfengur maður er Kolfinnur er og fjörmikill. En hér verð eg nú að sofa í nótt hjá þér." Hún gerði honum þá laug og strauk hvert bein á honum. Síðan klæddi hún hann um morguninn sem henni líkaði og bað hann vel fara. Búi fór nú til þess er hann kom í hólminn. Var þar Kolfinnur fyrir og fjöldi manns því að forvitni mikil var mönnum að sjá atgang þessa ungu manna því að báðir voru þeir sterklegir. Það var þá siður að kasta feldi undir fætur sér. Það voru lög þeirra að sá þeirra er af feldi hopaði skyldi leysa sig þrem mörkum silfurs. Sá þeirra var óvígur er fyrri lét sitt blóð á jörð. Eftir það voru sögð upp hólmgöngulög milli þeirra. Búi átti fyrr að höggva því að honum var á hólm skorað. Hvortveggi hafði góðan skjöld og öll önnur vopn. Búi hjó þá til Kolfinns. Kolfinnur brá þá við skildinum og tók af öðrumegin mundriða. Eftir það hjó Kolfinnur þvílíkt högg til Búa. Búi hjá þá til Kolfinns og gerði ónýtan fyrir honum skjöldinn og særði hann miklu sári á höndina. Var Kolfinnur þegar óvígur. Menn hlupu þá í millum þeirra og voru þeir skildir. Eftir það fór hvor leið sína. Fór Kolfinnur á Korpúlfsstaði og batt Korpúlfur sár hans og kvað eigi minna að von um skipti þeirra Búa. Dvaldist Kolfinnur nú þar um stund. Búi sneri frá hólmstefnu heim til Kollafjarðar og var Ólöf við laug og heilsaði Búa. Hann tók kveðju hennar og mælti: "Svo hefir nú borið til um fund okkarn Ólöf að eg mun eigi einn saman fara til hellis míns. Þykir mér og leiðint að ganga hingað hvern dag til tals við þig. Muntu nú fara með mér að sinni." Ólöf segir: "Það mun föður mínum illa hugna." Búi segir: "Hann mun nú ekki að spurður." Tók hann þá Ólöfu upp á handlegg sér og gekk leið sína. Fóru þau þar til er þau komu í helli Búa. Var Esja þar fyrir og heilsaði þeim: "Þykir mér þú Búi nú haft hafa vel að máli, varið hana Ólöfu fyrir vanmennum enda flutt hana nú úr klandri þeirra. Skaltu Ólöf mín vera hér velkomin." Ólöf kvað nú Búa mundu ráða sínum vistum að sinni. Kolfinnur spurði brotttöku Ólafar. Hann mælti þá við Korpúlf frænda sinn: "Til fjarri var eg nú. Eigi skyldi Ólöf svo farið hafa enda skal eg þegar leita á fund Búa er sár mitt er gróið." Korpúlfur segir: "Illa gerir þú það," sagði hann, "er þú leggur eftir Ólöfu hug þinn. Skaltu og eigi að mínu ráði leita á fund Búa nema þú hafir menn marga." 10. kafli Nú líður á veturinn og gerast gróin sár Kolfinns og þá mælti hann: "Nú mun eg fara að finna móður mína og fá mér þaðan menn en Grímur son þinn skal vera á morgun fyrir mér við Leiruvogsá og þeir menn sem þú sendir til liðs við mig." Korpúlfur kvað svo vera skyldu. Um morguninn fundust þeir frændur þar sem Kolfinnur hafði ákveðið og urðu þeir saman fimmtán. Fóru þeir síðan alla þá leið þar til er þeir komu undir fjallið hjá helli Búa. Var þar einstig bratt. Þar voru uppi tveir varðmenn, vel vopnaðir. Höfðu þeir og nógt grjót. Sá Kolfinnur að þeir máttu með öngu móti vinna einstigið. Kolfinnur kallar þá og mælti: "Ef Búi má heyra mál mitt þá gangi hann úr einstiginu ef hann hefir heldur manns hug en berkykvendis." Búi heyrði gjörla orð Kolfinns. Hljóp hann þá upp og greip vopn sín og kveðst aldrei skyldu þola klækisorð Kolfinns. Ólöf kvað óráðlegt út að ganga við þann liðsmun sem vera mundi. Búi kveðst eigi það hirða. Og er Búi var vopnaður þá laust þeim verk í augu hans bæði að hann varð þar báðum höndum til að grípa. Ólöf spurði hvað honum væri. Búi kvað þá mundu seinkast um útgönguna: "Get eg," sagði hann, "að fóstra mín hlutist nú til." Ólöf kvað það vel vera. Þá er Kolfinnur þóttist vita að ekki mundi verða útgangan Búa sneri hann þá á braut og hans menn. Létti hann þá eigi fyrr en hann kom heim og undi illa við sína ferð. Þegar er Kolfinnur sneri braut frá einstiginu bætist Búa augnaverkjarins. Leið nú af veturinn. 11. kafli En er sumra tók ræddust þau Búi við og Esja. "Vil eg nú," sagði hún, "að þú liggir eigi hér lengur heldur skaltu fara norður til Hrútafjarðar. Þar hefir skip uppi staðið í vetur á Borðeyri. Þar skaltu utan fara og freista hvað þar liggi fyrir þér. Eg gerist nú gömul og mun eg eiga fá vetur ólifað." Þessu næst bjó hún ferð hans og fékk honum mann til fylgdar og þrjá hesta. Ólöf skyldi fara heim í Kollafjörð og bíða hans um þrjá vetur. Búi fór með fjalli inn, þegar hann var búinn, sem leið liggur. Esja fóstra hans fór á leið með honum og þótti mikið fyrir að skilja við hann. Síðan reið Búi leið sína og er hann kom inn fyrir Blikdalsá fann hann þar smalamann úr Saurbæ. Hann spurði hverjir þessir menn væru. Búi sagði honum allt hið sanna. Og þegar þeir voru skildir og leiti bar á millum þeirra tók sauðamaður á rás heim og sagði þeim bræðrum allt um ferðir Búa. Þeir þökkuðu honum sitt starf. Létu þeir þegar taka hesta og kölluðu með sér heimamenn sína. Vopnuðust þeir skjótt og urðu saman tólf menn. Riðu þeir mikið. Búi sá eigi eftirreiðina fyrr en hann kom ofan hjá Skeiðhlíð. Hann reið þá þar til er hóll sá varð fyrir honum er síðan heitir Orustuhóll. Þar nam Búi staðar og bað förunaut sinn geyma hesta þeirra og gagna. Búi gekk upp á hólinn og bar upp grjót að sér. Hann hafði öll góð vopn og skyrtu þá er fóstra hans hafði gefið honum. Þá bræður bar brátt að. Hlupu þeir þegar af hestum sínum og veittu Búa atsókn harða. Búi varðist drengilega. Lét hann ganga grjót í fyrstu. Var það jafnsnemma að fallnir voru fjórir menn af þeim bræðrum enda hafði Búi þá lokið grjótinu. Hann tók þá skjöld sinn og sverð. Þeir bræður sóttu að með miklu kappi því að þeir voru báðir hugprúðir. Féllu þá enn tveir förunautar þeirra. Voru þeir bræður þá sárir og allir þeirra menn. Búi var þá enn ósár en ákaflega vígmóður. Í því bili kom til Eilífur bóndi úr Eilífsdal við hinn sétta mann og gekk á millum þeirra. Og með því að þeir bræður voru sárir, Helgi og Vakur, þá gáfu þeir upp. Eilífur bað Búa fara leið sína og svo gerði hann. Eilífur lét jarða dauða menn en lét binda sár hinna. Eftir það fóru þeir bræður heim í Saurbæ og undu illa sinni ferð. Búi létti eigi fyrr sinni ferð en hann kom norður í Hrútafjörð. Tók hann sér þar fari og er þeir voru búnir sigldu þeir á haf. Þeir bræður Helgi og Vakur tóku sér fari um sumarið í Kollafirði og fóru utan báðir. Þeir tóku Noreg og fóru til hirðar Haralds konungs hins hárfagra. Voru þeir með konungi um veturinn og þokkuðust hverjum manni vel. Þeir sögðu konungi frá skiptum þeirra Búa. Lét konungur illa yfir því er Búi hafði brennt hofið og kallaði það níðingsverk. 12. kafli Nú er að segja frá Búa. Þeim byrjaði seint og tóku Orkneyjar um haustið síðarla. Þá réð eyjunum Einar jarl Rögnvaldsson. Búi fór til hirðar jarls og gekk fyrir hann og kvaddi hann. Jarl spurði hver hann væri. Búi sagði af hið ljósasta "og vildi eg þiggja veturvist með yður herra." Jarl segir: "Fylgd góð mun í þér. Skaltu víst vera með oss í vetur ef þú vilt." Búi var með hirð jarlsins um veturinn. Einar jarl hafði starfsamt um veturinn. Var Búi hinn öruggasti í öllum mannraunum. En um vorið er skip það bjóst til Noregs er Búi hafði þangað á farið þá gekk Búi fyrir jarl og bað hann orlofs. Jarl segir: "Hitt þykir mér ráðlegra Búi að þú dveljist með oss. Höfum vér þig að röskum manni reynt. Munum vér leiða þig í hirðlög og láta þig taka þar með aðrar sæmdir ef þú vilt hér vera." Búi þakkaði jarli með fögrum orðum en kveðst vilja til Noregs. Jarl kvað svo vera skyldu. Eftir það sigldu þeir til Noregs og komu að norðarlega. Spurðu þeir að Haraldur konungur sat í Þrándheimi. Fór Búi til Þrándheims á einum byrðingi. Og er hann kom til Steinkera þá gekk hann fyrir konung er hann sat yfir borðum og kvaddi hann vel. Konungur spurði hver sá væri hinn mikli maður. Búi sagði til allt hið sanna. Konungur spurði hvar hann hefði verið um veturinn. Búi sagði honum "og er eg því hér kominn herra," sagði hann, "að eg vil bjóða yður mína þjónustu." Konungur mælti: "Muntu nokkuð eiga hér vel kvæmt?" Búi kveðst það eigi vita. Konungur bað kalla til sín Helga og Vakur. Og er þeir komu fyrir konung mælti hann: "Kennið þið nokkuð þenna hinn mikla mann?" "Já," sögðu þeir, "það mundi hann reyna ef þér væruð eigi svo nær og gjarna biðjum við yður að þér gefið okkur orlof til að hefna á honum harma okkarra." Konungur mælti: "Á öngum manni níðist eg þeim er gengur á mitt vald. Sé eg ykkur öngan ágóða þótt þér reynið með yður jafnbúnum. En af því Búi að þú vannst það níðingsverk að þú brenndir inni goð vor er öllum mönnum hæfir að tigna, þar fyrir skyldi eg hafa látið drepa þig ef þú hefðir eigi á vort vald gengið. En nú skaltu leysa höfuð þitt með einni sendiferð. Þú skalt sækja tafl til Dofra fóstra míns og færa mér." Búi mælti: "Hvert skal eg þá fara?" Konungur mælti: "Hygg þú sjálfur fyrir því." Búi mælti: "Það munu margir mæla herra að þetta sé forsending en þó mun eg undir játast. Vil eg þá að þér festið mér grið þar til er eg kann aftur að koma." Konungur kvað svo vera skyldu. Búi fór þá braut úr bænum og var um sumarið inn í Þrándheimi. Hann fréttist þá fyrir um örnefni. Var honum þá sagt hvar Dofrafjall var. 13. kafli Öndverðan vetur þá er snjó lagði á fjöll sneri Búi ferð sinni upp í byggðina. Dvaldist hann þá í ofanverðri byggðinni um hríð með bónda þeim er Rauður hét. Búi spurði Rauð ef hann kynni nokkuð ráð til að leggja með honum að hann kæmi fram ferðinni. Rauður mælti: "Marga menn hefir konungur sent þessa erindis og hefir engi aftur komið og auðsýnt er mér að konungur vill þig feigan. En öngra manna veit eg þeirra von að viti hvar Dofri ræður fyrir nema Haraldur konungur. En þar þú hefir mig sóttan þá skal eg til leggja nokkuð. Eg mun vísa þér leið til Dofrafjalls og svo gnípu þeirrar er flestir menn ætla að hellir Dofra muni í vera. Haga þú og svo til að þú kom undir þá gnípu jólaaftan en síðan verður þú að leitast um. Ekki kann eg meira að að gera." Búi bað hann hafa þökk fyrir og gaf Rauð fingurgull gott og mikið. Rauður þakkaði honum gjöfina "og kom hér Búi," sagði hann, "ef svo ólíklega er að þú komir aftur." Búi kvað svo vera skyldu. Hann háttar nú svo öllu sem Rauður hafði mælt, kom jólaaftan undir þessa gnípu og dvaldist þar um hríð og sá þar ekki líklegt til dyra. Búi drap þá hjöltum sínum á hamrinum og mælti: "Þú Dofri," sagði hann, "lúk upp þú höll þína og lát inn farmóðan mann og langt að kominn. Þar byrjar þinni tign." En er Búi hafði þetta mælt þrem sinnum þá lét í hamrinum sem er gengur reið og í því spratt í sundur hamarinn og urðu á dyr og því næst gekk kona í dyrnar. Hún var mikil á allan vöxt. Hún var fögur að áliti og vel búin, í rauðum kyrtli og allur hlöðum búinn, og digurt silfurbelti um sig. Hún hafði slegið hár sem meyja siður er. Var það mikið og fagurt. Hún hafði fagra hönd og mörg gull á og sterklegan handlegg og öll var hún listuleg að sjá. Hún heilsaði hinum komna. Hann tók því vel. Hún spurði hann að nafni. Hann sagði henni "eða hvert er þitt nafn eða kyn?" Hún segir: "Eg heiti Fríður dóttir Dofra konungs eða því berð þú maður um herbergi vor?" sagði hún. "Eg vil hitta föður þinn og biðja hann jólavistar. Hann er einn frægastur konungur." Fríður mælti: "Ekki ertu ólíklegur maður að sjá. Kalla eg ráð að þú gangir inn með mér." Búi gerði svo. Fríður bað þá aftur lúkast hellinn og svo var. Þau gengu þá um stund og lýsti af eldi. Hún sneri þá út að bjarginu í einum stað. Var þar fyrir hurð og önnur og þá komu þau í lítið herbergi. Það var allt tjaldað og ágæta vel um búið. Fríður mælti: "Hér skaltu Búi setjast niður og hvíla þig og leggja af þér vopn þín og vosklæði." Hann gerði svo. Síðan skaut hún fyrir þau fögru borði og bjó það, bar síðan að honum munnlaug af silfri og dýran dúk. Því næst bað hún hann sitja og snæða. Tók hún þá góða vist og ágætan drykk. Allur borðbúnaður var þar af silfri og við gull búinn, diskar og ker og spænir. Fríður settist þá niður hjá Búa og snæddu og drukku bæði saman. Hún bað hann þá segja sér allt af sínum ferðum. Búi gerði nú svo að hann sagði henni allt af þarkomu sinni. "Nú hefir þú vel gert," sagði hún, "að þú hefir ekki dult mig hins sanna. Má vera að þér verði ekki mein að því. En vita þóttist eg áður. En marga menn hefir Haraldur konungur sent eftir tafli þessu og hefir faðir minn öllum tortímt en nú mun eg ganga að finna hann og segja honum hvað komið er." Fríður gekk þá á braut og var á brott um hríð. Búi fagnaði henni vel er hún kom aftur og spurði hvað þau faðir hennar hefðu við talast. Hún kveðst hafa sagt honum að skeggbarn eitt lítið væri komið. Hann lést vilja sjá það. "Eg sagði að það varð að hvílast í nótt. Skaltu nú hér sofa í nótt í mínu herbergi." Hann lét sér það vel líka. Skemmtu þau sér þar um kveldið. 14. kafli Búi vaknaði um morguninn og var þá ljóst af degi. Fríður spurði hversu sofist hafði. Hann lét vel yfir. Hún bar þá að honum ágæt klæði og mælti: "Nú skaltu halda þér upp vel er þú gengur fyrir föður minn og kref hann djarflega jólavistar." Gengu þau þá fram í hellinn. Síðan gekk hún fyrir þar til er fyrir urðu hurðir og því næst komu þau í mikið herbergi. Það var allt altjaldað og hálmur á gólfi. Maður sat í öndugi á hinum æðra bekk, mikill og fríður. Hann hafði skegg mikið og hvítt af hæru. Þessi maður var vel búinn og allur sýndist Búa hann öldurmannlegur. Hvortveggi bekkur var skipaður af fólki og voru þeir margir heldur stórleitir. Konur sátu um þvert herbergið og var sú best farandi er í miðju sat. Borð stóðu um allt herbergið og vist fram sett og sú ein er mönnum sómdi þann tíma að neyta. Þar gengu og ungir menn og skenktu. Fríður gekk fyrir hásætismanninn og heilsaði á föður sinn. Þessi hinn skeggjaði maður svaraði vel dóttur sinni. Þóttist Búi nú vita að það mundi vera Dofri. Gekk hann þá fyrir hann og mælti svo: "Sit heill Dofri konungur með hirð glaða." Dofri tók vel orðum hans og mælti til dóttur sinnar: "Er þetta það skeggbarn er þú sagðir mér frá í gær?" "Svo er faðir," sagði Fríður. Dofri mælti: "Fáir koma slíkir úr Mannheimum nema Haraldur konungur fóstri minn. Hann er langt fyrir alla. Eða hvert er þitt erindi til vor?" Búi mælti: "Því er eg hér kominn að biðja yður jólavistar. Er eg útlenskur maður en heyrt margt sagt af frægð yðvarri. Nú þótti mér ófróðlegt að sjá eigi svo tígulegan höfðingja." Dofri segir: "Vel mælist þér. Vil eg að þú sért með oss. Skaltu drekka inni með oss um daga. Viljum vér þá eiga tal við þig. Skaltu skipa öndugi hið óæðra. En á kveldum skuluð þið Fríður dóttir mín skemmta ykkur í stofu hennar því að þér mun þá þykja húskarlar mínir heldur leikmiklir." Búi þakkaði með fögrum orðum höfðinglegt boð og fagra tilskipan. Gekk hann þá um þvert gólf og Fríður með honum. Hún bað þá upp standa þrjá er þar sátu áður. Og svo var. Síðan lét hún taka undir þau fögur hægindi og settust þau þar á, sátu þar um daginn. Dofri spurði Búa margra hluta en hann leysti úr öllum vel. En er aftna tók gengu þau fyrir Dofra og heilsuðu á hann. Hann bað þau vel fara. Gengu þau þá til herbergis hennar og voru þar um nóttina. Með þeim hætti liðu jól úr garði. Affaradag jóla gekk Búi fyrir Dofra og mælti: "Þér hafið veitt mér höfðinglega sem von var að. Nú þó að mér þyki hér gott þá skal eg þó eigi ásætni við yður hafa." Dofri mælti: "Þú Búi skalt vera hér velkominn í allan vetur ef þér þykir það betra." Búi þakkar honum nú af nýju sinn velgerning. Héldu þau Fríður nú sínum háttum sem fyrr var sagt. Leið nú á veturinn og er fár nætur voru til sumars mælti Búi til Fríðar: "Hverja ætlan hefir þú á að verða skuli mitt erindi? Eg vil biðja þig að þú leggir til nokkur orð við föður þinn." Fríður segir: "Kemur þér ekki það í hug að þú munir svo hafa verið hér í vetur að þú eigir öngva von síðan að koma í Mannheima? Er þér það að gera í kunnleika að eg geng með barni þínu." Búi kveðst því ekki vilja í móti mæla "en þó vænti eg að þér muni nokkurninn vel fara til mín." Fríður mælti: "Illt mun mér nú þykja að þú sért drepinn þótt þú værir þess verður. Mun eg nú heldur ganga til föður míns í dag og vita hvar komi þínu máli." Um daginn er fólk var komið í sæti gekk Fríður til föður síns og settist í kné honum og lagði hendur um háls honum og mælti: "Hvernig ætlar þú faðir að skiljast við Búa veturgest þinn? Væri það nú höfðinglegt að gera vel til hans. Munu að gjarnara ágætir menn yður heimsækja." Dofri segir: "Hvernig vel vildir þú dóttir að eg lúki við hann?" Fríður mælti: "Gef honum ágætar gjafir faðir. Þá má það sjá að hann hefir mikinn höfðingja og ágætan heim sótt." Dofri mælti: "Hvað skal þar til velja?" Fríður mælti: "Gef honum tafl það er Haraldur konungur hefir oft eftir sent og þar með fingurgull. Má hann þá kaupa sig í frið við konung með taflinu en fingurgullið skal hann eiga til menja." Dofri mælti: "Ráða skaltu þessu dóttir að sinni því að eg má þér eigi synja." "Þá geri þú vel faðir sem von var." Gekk hún þá í braut og til sætis síns. Liðu þessir dagar til sumars og sumars dag hinn fyrsta mælti Fríður til Búa: "Nú skulum við snæða hér í stofu minni. Síðan taktu klæði þín og vopn og lát það til reiðu. Þú skalt hér skamma dvöl eiga frá því þið faðir minn skiljið." Eftir það gengu þau á fund Dofra. Var hann þá kominn undir borð. Dofri heilsaði þeim og bað þau sitja og drekka. Þau gerðu svo. Þá mælti Dofri: "Þú Búi hefir hér vel verið í vetur að vorri vitund og til marks viljum vér að það sjáist með sönnum jartegnum að þú hefir oss heim sótt. Tafl er hér er eg vil gefa þér. Þenna greip veit eg svo að Haraldi konungi fóstra mínum leikur mestur hugur á. Gullhring þenna skaltu þiggja að mér." Búi þakkaði honum með mörgum fögrum orðum sinn velgerning og þá miklu sæmd er hann gerði til hans og bað hann sitja allra konunga heilastan. Eftir það tóku þau orlof til handa Búa og sneru þá í brott. Sem þau komu til hellisdyra þau laukst upp hellirinn. Gekk Fríður þá út og mælti til Búa: "Nú er svo komið Búi sem eg sagði þér að eg geng með barni þínu. Skal eg nú segja þér hver skipan á því skal vera. Ef það er meybarn þá skal það hér vera með mér en ef það er sveinn þá mun eg þér senda hann er hann er tólf vetra gamall. Skaltu þá vel við honum taka en ef þú gerir ei svo þá muntu á þínum hlut kenna. Hvergi mun eg leiða þig. Far þú vel," segir Fríður. Eftir það skilja þau. 15. kafli Gekk Búi leið sína og létti eigi fyrr en hann kom til Rauðs. Tók hann vel við honum og spurði að ferðum hans en Búi sagði af hið sanna. Rauður mælti: "Mikla gæfu hefir þú borið til um þína för. En svo muntu eiga við að búast að eigi mun Haraldur konungur þessu einu við þig hlíta því að nú mun hann etja á þig því trölli er eg veit mest í Noregi. En það er blámaður sá er mörgum manni hefir að bana orðið. Nú vil eg gefa þér fangastakk þann er þú skalt þá hafa. Vænti eg þá að þú munir eigi allmjög kenna hvar sem hann leggur að þér krummur sínar því að hann brýtur bein í flestum ef hann deyðir eigi." Búi þakkaði Rauð sinn velgerning. Dvaldist hann þar nokkurar nætur, fór síðan ofan í Þrándheim. Spurði hann þá til konungs að hann var að Steinkerum. Sem Búi kom þar gekk hann á konungs fund og kvaddi hann. Konungur leit við honum og mælti: "Ertu þar Búi? Hversu tók Dofri þér?" "Já herra," sagði Búi, "yðar naut eg að því að vel fór Dofra til mín." Konungur mælti: "Varstu með Dofra í vetur eða fékkstu taflið?" "Já herra," sagði Búi, "fékk eg tafl." Konungur mælti: "Kom til mín á morgun með það. Búi kvað svo vera skyldu. Um daginn eftir kom Búi fyrir konung er hann sat yfir drykkjuborðum og færði honum taflið. Og er konungur sá það mælti hann: "Þú ert mikill maður fyrir þér Búi," sagði konungur, "hefir þú sannar jartegnir að þú hefir Dofra fundið. Þetta tafl hefir hann aldrei viljað fyrir mér laust láta. En svo gildur sem þú ert þá verðum vér að sjá nokkuð af þínu afli og skaltu fást við blámann vorn." Búi segir: "Það hugði eg ef eg fengi taflið að þér munduð mig láta fara í friði." Konungur mælti: "Þetta er lítils vert að taka eitt fang." Búi segir: "Dýrt er drottins orð. Vil eg það nú skilja til við yður herra ef svo ólíklegt er að eg beri af honum að þér gefið mér upp reiði yðra og gott orlof til Íslands." Konungur játaði því. Eftir það lagði konungur til hálfs mánaðar stefnu að þetta fang tækist því að hann vildi að sem flestir sæju. En er sú stund var liðin þá lét konungur blása til öllu fólki út á víðan völl. Sem konungur og mikið fjölmenni var þar komið þá bjóst Búi til fangs. Hann fór í skyrtu sína þá er Esja hafði gefið honum og fyrr gátum vér. Síðan steypti hann yfir sig fangastakki þeim er Rauður gaf honum, fór þá til leikmótsins. Konungur lét þá leiða fram blámanninn og héldu á honum fjórir menn. Hann grenjaði fast og lét tröllslega. Þar var svo háttað að þar var sléttur völlur en þar um utan hæðir miklar. Sat þar á fólkið umhverfis. Á vellinum stóð ein hella mikil og uppþunn niður í völlinn. Það kölluðu þeir fanghellu. Búi gekk þá fram fyrir konung og mælti: "Hvar er sá maður herra er þér ætlið mér fang við?" Konungur mælti: "Sjá hvar þeir halda honum fram á völlinn." Búi mælti: "Ekki sýnist mér það maður. Trölli sýnist mér það líkara." Konungur mælti: "Vér skulum freista þín skamma stund ef vér sjáum að þú hefir ekki við." Búi mælti: "Þér munuð ráða vilja." Eftir það gekk Búi fram á völlinn og er fólkið sá hann þá mæltu margir að það væri illa er trölli skyldi etja upp á jafndrengilegan mann. Þeir létu þá lausan blámanninn. Hljóp hann þá grenjandi að Búa. Og er þeir mættust tókust þeir afar fast og sviptust. Skildi Búi það skjótt að hann var mjög aflvani fyrir þessu kykvendi. Forðaði hann sér þá við föllum en stóð þó fast og fór undan víða um völlinn. Skildi Búi það að hann tók svo að bein hans mundu brotna ef eigi hlífðu honum klæðin. Það skildi Búi að blámaðurinn vildi færa hann að hellunni. En er þeir höfðu að gengist um stund þá mæddist blámaðurinn ákaflega og tók að láta í honum sem þá að lætur í göltum þá er þeir gangast að og á þann hátt felldi hann froðu. Og er Búi fann það lét hann hörfast undan að hellunni. Blámaðurinn herti þá að af nýju og voru ógurleg hans læti að heyra því að hann var drjúgum sprunginn af sókn. En er Búi kom að hellunni svo að hann kenndi hennar með hælunum þá herti blámaðurinn að slíkt er hann mátti. Búi brá þá við er minnst var von og hljóp hann þá öfugur yfir helluna en blámanninum urðu lausar hendurnar og skruppu af fangastakkinum. Búi kippti þá að sér blámanninum slíkt er hann mátt. Hrataði hann þá að hellunni svo að bringspalir hans tóku þar sem hvössust var. Þá hljóp Búi ofan á hann með öllu afli. Gengu þá í sundur bringspelirnir í blámanninum og því næst var hann dauður. Margir töluðu um að þetta væri mikið þrekvirki. Búi gekk þá fyrir Harald konung. Konungur mælti: "Mikill maður ertu fyrir þér Búi og mun nú skilja með okkur og far nú til áttjarða þinna í friði fyrir oss." Búi þakkaði það konungi. Fór Búi þá til hafs út og fékk sér fari til Íslands. 16. kafli Það sumar er Búi fór utan gekk Ólöf hin væna með barni. Fæddi hún um haustið mey er hún kenndi Búa og var kölluð Þuríður. Esja bauð meynni til fósturs til sín og það þágu þau Kolli. En það sumar er Búi var í Þrándheimi fóru til Íslands Helgi og Vakur. Sögðu þeir út þau tíðindi að Búi væri látinn og Haraldur konungur hefði sent hann forsending þá er engi hefði aftur komið. En er það spurðist fór Kolfinnur til Kollafjarðar og tók þaðan á brott Ólöfu hina vænu nauðga og að óvilja fölur hennar. Kolfinnur fór þá með Ólöfu út til Vatns. Var hún þar sumar og veturinn eftir. En um sumarið eftir kom skip suður á Eyrarbakka í höfn þá er heitir í Einarshöfn. Spurðist það þar af að þar var á Búi Andríðsson. Og þegar þetta spurðist ofan yfir heiði hélt Kolfinnur til njósnum um ferðir Búa og spurði er hann kom í Ölfus. Þá reið Kolfinnur heiman upp til Öxnaskarðs við tólfta mann. Þar var með honum Grímur frændi hans og tíu menn aðrir. Þeir sátu þar fyrir Búa. Í því bili reið Búi ofan úr skarðinu. Hann sá mennina vopnaða. Hann hugsar hverjir vera mundu. Búi hafði öll góð vopn. Hann var í skyrtu sinni Esjunaut. Búi reið til steins eins mikils er stóð undir skarðinu og sté þar af hesti sínum. Þeir hlupu þá þangað til. Búi hafði haft snarspjót lítið í hendi. Fleygði hann því til þeirra. Það kom í skjöld Gríms neðanverðan. Þá brast út úr skildinum. Hljóp þá spjótið í fót Grími fyrir ofan kné og þar í gegnum. Var Grímur þegar óvígur. Búi sneri þá baki að steininum því að hann er svo mikill sem hamar. Mátti þá framan aðeins að honum ganga. Kolfinnur mælti þá: "Vel er það Búi að vér höfum hér mæst. Mun nú eigi hlífa hellir Esju tröllsins sem næst." Búi segir: "Ekki kann eg að kasta löstum á það. Hafa þeir einir orðið fundir okkrir er þú munt svo lítið hafa í unnið. Vænti eg að svo muni enn vera. Er það nú drengsverk að einn gangi að einum." Kolfinnur mælti: "Þess skulum vér nú njóta að vér erum fleiri." Búi mælti: "Þá skal vel við því taka." Þá veittu þeir honum atsókn en hann varðist prúðlega. Kolfinnur eggjaði sína menn en hlífðist sjálfur við því að hann ætlaði sér afburð. En þeim var Búi torsóttur því að þótt þeir kæmu höggum eða lögum á hann þá varð hann ekki sár þar er skyrtan tók en hver sem hann kom höggum á þá þurfti eigi um að binda. Var þá svo komið að sex menn voru látnir af Kolfinni en hinir allir sárir. Búi var sár á fæti. Kolfinnur mælti þá: "Mikið tröll ertu Búi," sagði hann, "er þú verst svo lengi jafnmörgum mönnum." Búi mælti: "Þú hefir í leikandi einni haft og er það klækilegt að þora eigi að sækja að mér." Kolfinnur mælti: "Það mundi eg vilja að þú ættir það að segja að eg hlífist eigi við áður en lúki." Hljóp Kolfinnur þá að Búa með brugðið sverð og hjó hvert að öðru. Búi hlífði sér með skildinum. Kolfinnur hjó hart og tíðum og sótti alldrengilega. Hjóst þá allmjög skjöldur Búa. En er Kolfinni rénaði hin mesta atsókn og hann mæðist þá herti Búi að honum og gekk þá fram frá steininum. Hann hjó þá eigi mörg högg áður hann ónýtti skjöld Kolfinns. Síðan veitti hann Kolfinni það slag að hann tók í sundur í miðju. Búi var þá og sár nokkuð bæði á höndum og fótum þar sem eigi hafði skyrtan hlíft en ákaflega var hann vígmóður. Búi gekk þá þangað til sem Grímur var son Korpúlfs og spurði hvort hann vildi grið hafa. Hann kveðst það vildu. "Þá skaltu það sverja," segir Búi, "að vera mér trúr héðan af." Grímur kvað svo vera skyldu. Förunautar Kolfinns tóku þá og grið af Búa. Bað hann þá taka lík Kolfinns og sjá fyrir því. Búi tók þá hest sinn. Reið hann þar til er hann kom ofan til Elliðavatns. Ólöf var úti og heilsaði Búa. Hann bað hana taka klæði sín og fara með sér. Hún gerði svo. Reið hún með Búa til Kollafjarðar. Kolli var úti og fagnaði vel Búa og bauð honum þar að vera. Búi kveðst mundu eiga þar dvöl nokkura við laugina og binda sár sín. Var nú svo gert. Búi mælti þá til Kolla: "Nú er svo Kolli," sagði Búi, "sem þér er kunnigt um skipti okkar Ólafar. Hefi eg launað Kolfinni sína djörfung. En nú skal Ólöf dóttir yður vera með þér þar til henni býðst forlag því að eg vil nú þó ekki elska hana síðan Kolfinnur hefir spillt henni." Nú varð svo að vera sem Búi vildi. 17. kafli Búi reið þá til Esjubergs og var Esja fóstra hans enn á lífi. Varð hún honum alls hugar fegin. Búi fór brátt í Brautarholt að finna móður sína. Var hún þá enn hraust kona. Dvaldist Búi þar um hríð. Þorgrímur bjó þá enn að Hofi og var þá gamall mjög. Hann átti dóttur eina barna er Helga hét. Hún var ung og hin skörulegasta kona. Arngrímur bróðir hans var þá og andaður en þeir bræður höfðu skipt arfi með sér. Hafði Helgi land í Saurbæ en Vakur gerðist kaupmaður og þótti vera hinn vaskasti. En er svo var komið völdust til vitrir menn og góðgjarnir og báru sáttmál millum þeirra Búa og Þorgríms. Og hversu margt sem hér var um talað þá fór það fram að þeir festu öll þessi mál, Búi og Þorgrímur, undir dóm hinna bestu manna. Þeim málum var upp lokið um vorið á vorþingi. Höfðu þeir það upphaf að þessum málum og sættum að Búi skyldi fá Helgu Þorgrímsdóttur en fégjöld þau sem dæmdust á Búa skyldu vera heimanfylgja Helgu. Sáu þeir það sem var að þau Búi áttu hvern pening eftir hans dag. Helgi Arngrímsson skyldi fá Ólafar Kolladóttur. Eftir það veittu hvorir öðrum tryggðir. Efldu þeir nú til veislu mikillar að Hofi því að þar skyldu vera bæði brullaupin. Tókust þessi ráð um sumarið hvortveggi. Litlu síðar andaðist Esja. Hún gaf allt fé sitt Búa og Þuríði dóttur hans. Búi tók þá við búi á Esjubergi og setti þar á rausnarbú. Eftir brullaupið um sumarið fór Helga til Esjubergs með Búa. Var það brátt auðsætt að hún var hinn mesti skörungur. Tókst nú vinátta með þeim Þorgrími goða með mægðum. Hélt Þorgrímur nú öllu Búa til sæmdar. Var þá þangað skotið öllum málum. Búi færði sér það allvel í nyt. Varð hann hinn vinsælasti maður. Þeim Búa og Helgu varð barna auðið. Þau áttu son þann er Ingólfur hét og annar hét Þorsteinn. Dóttur áttu þau er Hallbera hét. Annað sumar eftir tók Þorgrímur sótt og andaðist. Var hann út leiddur að þeim sið sem þá var og drukkið eftir hann erfi. Í þann tíma lét Vakur af förum. Tók hann við landi í Saurbæ en Helgi tók þá Hofsland af Búa. Tók þá Búi við mannaforræði. Hafði hann allt út að Nýjahrauni og inn til Botnsár. Búi bjó á Esjubergi tólf vetur og átti mikið rausnarbú. Á þeirri stundu fékk Vakur Þuríðar dóttur Búa og Ólafar. 18. kafli En er svo var komið kom skip norður í Eyjafirði. Þar voru á þrænskir menn. Á því skipi var sá maður er Jökull hét, ungur og stórþriflegur. Þegar er Jökull kom á land keypti hann sér hesta og föruneyti. Reið hann síðan suður um land og er ekki fyrr frá hans ferð sagt en hann kom aftan dags til Esjubergs. Lét hann lítið yfir sér. Þeir voru þar um nóttina því að þar var öllum mönnum matur til reiðu. Um morguninn gekk Jökull til tals við Búa og mælti: "Svo er með vexti að eg á við þig erindi Búi," sagði hann. Búi spurði hverninn það var. Jökull mælti: "Mér er sagt að þú sért faðir minn en Fríður er móðir mín dóttir Dofra konungs." Búi segir: "Ólíkleg sögn er að þú sért minn son því að mér þætti von að sá mundi vera gildur maður er undir okkur ælist en mér sýnist þú heldur auðþriflegur." Jökull mælti: "Eg hefi enn ekki marga vetur á baki. En móðir mín bað mig það segja þér til jartegna að hún kveðst hafa sagt þér að þú mundir kenna á þínum hlut ef þú tækir eigi vel við frændsemi minni." Búi segir: "Ekki hirði eg um sögur þínar. Þykja mér þær ómerkilegar. Vil eg að við tökum fang því að þú ert ekki okkar son ef engi máttur er í þér." Jökull mælti: "Það er fáheyrt að eg, tólf vetra gamall, þurfi að taka fang við þig þar sem þú deyddir blámann Haralds konungs í fangbrögðum þínum, en þó muntu ráða vilja. Þeir Búi gengu þá austur undir fjallið til laugar. Þar voru vellir fagrir. Síðan klæddust þeir til fangs og tókust allsterklega og gekk svo lengi að hvorgi féll. Búi varð móður mjög. Jökull mælti: "Þreytum þetta ekki meir og tak við frændsemi minni." "Nei," kvað Búi, "falla skal annar hvor okkar." Jökull mælti: "Eigi mun þá betur." Eftir það réðust þeir á í annað sinn. Voru þá allmiklar sviptingar. Var þá við sjálft búið að Jökull mundi falla. Og í því var sem kippt væri báðum fótum senn undan Búa og féll hann áfram og þar varð við brestur hár og mikill. Búi mælti: "Fellt mun nú til hlítar og mátti móðir þín eigi hlutlaust láta vera." Þá hlupu að aðrir menn og sáu þar vegsummerki að bringspelirnir voru í sundur í Búa og hafði orðið undir steinn. Búi mælti þá til Jökuls: "Ekki hefir nú orðið erindi þitt hingað hagfellt því að þú hefðir verið mannsefni enda mun nú skömm saga frá mér ganga." Eftir það var Búi borinn heim á rauðum skildi og lifði þrjár nætur og andaðist síðan. Jökli þótti verk sitt svo illt að hann reið þegar í brott og til skips er búið var suður á Eyrarbakka og fór þar utan um sumarið en síðan höfum vér önga sögu heyrt frá honum. Helga Þorgrímsdóttir bjó að Esjubergi með börnum þeirra Búa. Þá stóð enn kirkja sú að Esjubergi er Örlygur hafði látið gera. Gaf þá engi maður gaum að henni. En með því að Búi var skírður maður en blótaði aldrei þá lét Helga húsfreyja grafa hann undir kirkjuveggnum hinum syðra og leggja ekki fémætt hjá honum nema vopn hans. Sú hin sama járnklukka hékk þá fyrir kirkjunni á Esjubergi er Árni biskup réð fyrir stað, Þorláksson, og Nikulás Pétursson bjó að Hofi, og var þá slitin af ryði. Árni biskup lét og þann sama plenarium fara suður í Skálholt og lét búa og líma öll blöðin í kjölinn og er írskt letur á. Frá Búa Andríðssyni er komin mikli ætt. Og lúkum vér þar Kjalnesinga sögu.